Sjálfbær þróun er þróun sem mætir þörfum nútímans án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum.
Höldur ehf. leggur áherslu á að starfsemin sé í sátt við samfélagið og umhverfið í heild. Fyrirtækið leggur sig fram við að leita stöðugt leiða til umbóta í átt að sjálfbærni og vill þannig axla ábyrgð á þeim áhrifum sem rekstur fyrirtækisins hefur. Með það að leiðarljósi greinir fyrirtækið áhrif sín á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti og vinnur að því að draga úr neikvæðum áhrifum og auka þau jákvæðu áhrif sem reksturinn hefur á innra og ytra umhverfi sitt.
Fyrirtækið leggur ekki aðeins áherslu að auka sjálfbærni í sinni kjarnastarfsemi heldur vill fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að auka sjálfbærni í samfélaginu í heild, m.a. með því að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum á landi.
Höldur leggur áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og lágmörkun úrgangs og losun gróðurhúsalofttegunda. Fyrirtækið vinnur að stöðugum umbótum í umhverfismálum til að lágmarka umhverfisáhrif af rekstri fyrirtækisins.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á jafnrétti, jafna möguleika til starfsþróunar og uppbyggilega fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður og samheldinn vinnustaður. Starfsfólk, þekking þeirra, færni og reynsla er verðmætasti auður félagsins. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri og starfsemi um land allt og mun áfram bjóða uppá starfstækifæri á landsbyggðinni og styðja við nærumhverfi sitt.
Höldur leggur áherslu á góða stjórnarhætti sem og hagkvæma og ábyrga nýtingu fjármagns. Stjórnendur og starfsfólk skulu viðhafa gott viðskiptasiðferði gagnvart viðskiptavinum, birgjum og öðrum hagsmunaaðilum. Traust og gott orðspor er félaginu mikilvægt. Góðir viðskiptahættir, virðing og hlíting laga og reglugerða eru þau grunngildi sem verklag félagsins byggir á.
Höldur vill sýna gott fordæmi í verki með því að vera leiðandi í orkuskiptum og umhverfismálum. Höldur vill tryggja fjölbreytt störf um land allt og skapa heilbrigt starfsumhverfi sem byggir á jafnrétti, virðingu og sterkri liðsheild.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun varða leiðina að bættum heimi. Lögð verður áhersla á að samþætta Heimsmarkmiðin við starfsemi fyrirtækisins.
Kjarnamarkmið Hölds eru:
Fyrirtækið setur sér árleg markmið sem tengjast kjarnamarkmiðunum og metur árlega árangur.
Stjórn félagsins samþykkir stefnuna og ber jafnframt ábyrgð á reglulegri endurskoðun hennar. Forstjóri er ábyrgur fyrir framkvæmd stefnunnar og hefur ásamt framkvæmdaráði félagsins yfirumsjón með sjálfbærniverkefnum.
Losun gróðurhúsalofttegunda. Árangur okkar til að draga úr kolefnislosun á árinu var góður og losunarkræfni ökutækjaflota (kolefnislosun/fjöldi ökutækja) lækkaði um 24% á árinu.
Aukning hleðsluinnviða. Við hófum hönnun og undirbúning vegna stækkunar á heimtaug og uppsetningu á nýrri hraðhleðslustöð á starfsstöð félagsins við Njarðargötu.
Orkuskipti og orkuöryggi. Við framkvæmdum greiningu og kostnaðaráætlun til að skoða grundvöll fyrir uppsetningu á sólarsellum til að lækka afltoppa og tryggja orkuöryggi.
Meðhöndlun úrgangs. Við drógum úr úrgangsmyndun á árinu og náðum 90% endurvinnsluhlutfalli heildarúrgangs á árinu.
Við erum stöðugt að vinna í að auka hlutfall kvenna sem starfar hjá félaginu og náðum hlutfallinu upp í 31% á árinu 2024 sem er hæsta hlutfall hingað til.
Við stuðluðum að öruggu vinnuumhverfi og hvöttum starfsfólk til að stunda heilbrigt líferni með þemaviku um hreyfingu og styrk til heilsueflingar. Þá komum við á mælingum sem taka m.a. mið af starfsánægju, líðan og jöfnum tækifærum.
Við unnum að stefnumótun á árinu og stjórn Hölds samþykkti m.a. nýjar siðareglur og mannauðs-og mannréttindastefnu.
Markmið okkar um eigin gróðursetningu á 3000 trjáplöntum á árinu náðist því miður ekki en veður og bleyta í jarðvegi í gróðursetningarreit gerði okkur erfitt um vik og einungis var unnt að gróðursetja innan við 100 plöntur.
Okkur hjá Bílaleigu Akureyrar er mikilvægt að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við samfélagið og umhverfið í heild. Við vinnum því að stöðugum umbótum í umhverfismálum til lágmarka umhverfisáhrif af rekstri fyrirtækisins. Bílaleiga Akureyrar stuðlar að aukinni umhverfisvitund starfsmanna og leggur áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og lágmörkun úrgangs og losun gróðurhúsalofttegunda.
Höldur leggur áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og lágmörkun úrgangs og losun gróðurhúsalofttegunda. Frá árinu 2009 hefur Höldur unnið í samræmi við umhverfisstefnu félagsins þar sem áhersla er lögð á stöðugar umbætur í umhverfismálum til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum í rekstri Hölds.
Umhverfisþættir félagsins eru vaktaðir og greindir í samræmi við kröfur umhverfisstjórnunarstaðalsins ISO 14001 og helstu umhverfisþættir byggja á orkunotkun, lækkun losunar vegna aksturs, úrgangi þ.m.t. spilliefnum, náttúru og landgræðslu.
Orkuskipti í samgöngum er veigamikill þáttur í að draga úr losun og fyrirtækið hefur sett árleg markmið um aukið hlutfall visthæfra ökutækja (rafmagns- og tengiltvinnbíla) í heildarflota fyrirtækisins en þess má geta að í markmiðum fyrir árið 2023 er einungis miðað við rafbíla eða aðra hreinorkubíla.
Eins og fram kemur í umhverfisstefnu fyrirtækisins er Bílaleigu Akureyrar mikilvægt að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við samfélagið og umhverfið í heild. Við leggjum okkur fram við að leita stöðugt leiða til umbóta í átt að sjálfbærni og viljum þannig axla ábyrgð á þeim áhrifum sem rekstur fyrirtækisins hefur á samfélagið og umhverfið.
Við tökum virkan þátt í verkefnum innan ferðaþjónustunnar sem varða öryggi ferðamanna, umhverfismál og samfélagslega ábyrgð. Þann 10. janúar 2017 skrifuðum við undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu, hvatningaverkefni sem íslenski ferðaklasinn og Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð standa að. Með undirritun yfirlýsingarinnar höfum við skuldbundið okkur til að stuðla að ábyrgri ferðaþjónustu með því að ganga vel um og virða náttúruna, tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi, virða réttindi starfsfólks og hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Þátttaka í verkefninu gefur okkur hjá Bílaleigu Akureyrar tækifæri til að þróa áherslur okkar í ábyrgri ferðaþjónustu enn frekar og um leið erum við hluti af stærri heild, ferðaþjónustu sem leggur áherslu á ábyrga starfshætti og sjálfbærni í rekstri.
Hér fyrir neðan má sjá hluta af þeim verkefnum sem við höfum lagt áherslu á að undanförnu.
Til að tryggja fjölbreytt og aðgengilegt fræðsluefni fór fyrirtækið í samstarf við fræðslufyrirtækið Akademias árið 2023 og bíður nú starfsfólki sínu aukið úrval af rafrænu fræðsluefni.
Fyrirtækið er með starfsemi víða um land og við ætlum að leitast við að sækja vöru og þjónustu til aðila í heimabyggð á árinu 2023
Við ætlum að halda áfram að styrkja íþrótta- og menningarstarf um allt land.
Opnunartímar | Hafa samband | Mínar síður | Langtímaleiga | Veftré | English
Höldur er leyfishafi Europcar International á Íslandi.
© Efni þessa vefs er varið höfundarrétti og afritun með öllu óheimil